Góddaginnnnnnnnn!!!!!
11.05.2007 09:47:58 / Ólöf

Jahh hvað á maður að gera annað!!

Jahh það er spurning!!

Jamm og já, þannig er mál með vexti að annað hvort þarf ég að læsa þessari síðu eða hætta þessu alveg!!!  Það kom upp svoltið.  Hversu lítið sem maður skrifar þá virðist það samt ekki vera í lagi :klikk:

Aha hafið það gott ( my friends 8) ;)

Tata 


» 14 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 16:36:59 / Ólöf

Ég er búin!!!!

Vúhú ég er búin!!
 
SKÓLINN ER BÚINN vá hvað það er æðislegt, á eftir að fá útúr tveimur prófum, en hin fimm komu miklu betur út en ég hélt og það allavega stærðfræðin og eðlis-og efnafræðin, vá ég ennþá hissa og svo er ég alltaf að kíkja á netið til að athuga hvort ég hafi lækkað eitthvað því þetta getur varla verið minn árangur, en það breytist ekkert, þannig að ég hlýt að vera svona góð í þessu;) frekar fyndið að fá hærra í stærðfræði en íslensku eða það finnst mér allavega;)
 
En nóg um þennan skóla, yndisleg helgi framundan ( strákarnir koma ) og það verður bara skemmtilegt.. Júróvisión og skemmtileg heit.
 
Jæja það er best að fara að græja einhvern júróvisíon mat og setja sig í gírinn, ég er að fara að kveikja á þessu sjónvarpi í fyrsta skiptið í langan tíma og það verður ekkert smá ljúft að kúra fyrir framan sjónvarpið í kvöld án þess að vera stressaður yfir prófum.  Æði smæði vá hvað mig hlakkar til.
 
Jæja hafið það gott.
TaTa 

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 12:23:02 / Ólöf

Þetta er alveg að hafast!!!!

Ó já þetta er alveg að hafast.

Jamm og já þetta er sko alveg að hafast.  Ekki eftir nema 2 próf og eitt munnlegt reyndar, en svo er ég búin;) vá hvað mig hlakkar til.

Knútur fór í stærðfræðipróf í gær og honum gekk mjög vel, ( hann er líka svo klár ;) )  En allavega þetta er sko allt að hafast hjá okkur.

Var í stærðfræðiprófi í morgun og ég vil ekkert vera að tjá mig um það eins og er......:( en þetta kemur allt í ljós, það er verst að bíða eftir að fá útúr þessum prófum.

Jamm og já hitti Örnu og Jón Andra í gær sem var æðislegt, svo langt síðan ég hef séð þau, litli pjakkur orðinn ekkert smá stór..

Svo er komið að okkur að kíkja suður á þau.

Jahh það er best að fara að koma sér í lærdómsgírinn, og taka þessi tvö síðustu með stæl;)

Hafið það gott.

TaTa


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 19:21:32 / Ólöf

Jæja alveg að verða hálfnuð!!

Aha hálfnuð á mánudaginn!!

Jebb þetta hefst allt saman;) en núna er ég sem sagt búin með 3 fög og á eftir að taka 4 próf til viðbótar, klára það á fimmtudaginn, vá hvað ég get ekki beðið;)

Próf á mánudag, þriðjudag. miðvikudag og síðasta á fimmtudag.  Er frekar kvíðin fyrir næstu viku en ég hef þetta af;)  ( hope so ).

En jebb Arna mig hlakkar ekkert smá að hitta ykkur, er búin að vera að bíða eftir ykkur svo lengi;) 

En ég er komin með annan dag fyrir suðurferðinni okkar, ætla að bera það undir þig fyrst, ég fer nú ekki að koma suður nema þið séuð heima;)

Jamm og já það er föstudagskvöld, Knútur minn á æfingu og ég ætla að fara að drífa mig að læra svoltið áður en hann kemur heim, ( svo ég geti haft það kósý með honum þegar hann kemur heim;) )

Hafið það gott.


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 10:59:46 / Ólöf

Je minn eini!

Jahh það er svo HEITT hérna!

Ég hugsa að það sé stutt í það að það líði yfir mann  í þessum skóla.  Það er svo ógó heitt, jeminn eini ég held að húsvörðurinn sé ekki alveg að fatta að það sé komið sumar, þó svo það sé búinn að vera 22 stiga hiti um helgina og örugglega eitthvað svipað í dag.

Ég er að hugsa um að reyna að finna mér skugga til að liggja í.......

Jahh prófin byrja á miðvikudaginn og þá verð ég non tölvu-og  símatengd í 2.vikur.  Vá hvað ég vona að það verði fljótt að líða.

Jæja hafið það gott, ég ætla að fara að finna skugga. 8)

TaTa


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 08:20:33 / Ólöf

Vó!!!

Vó hiti!!

Jahh hafiði heyrt spánna um helgina??  Hún er ekkert smá góð ef Stormurinn er ekkert að ljúga;)  En mér líst vel á þessa spá.

Það verður grillað ef ég blikka Knút;)  fiskað, vonandi hjólað eða labbað og gert eitthvað sumarlegt og skemmtilegt 8)

En það er hins vegar ekki líft í þessum skóla, ég er ansi hrædd um að húsvörðurinn hafi gleymt að slökkva á miðstöðinni og þess vegna er svona ógeðslega heitt inni, kennararnir geta ekki einu sinni kennt í þessu veðri og fara út að labba ( sem er by the way bara allt í góðu).

Úfff manstu Arna þegar við vorum að vinna í kísiliðjunni og það var eitthvað að miðstöðinni og það var ógeðslega heitt, maður gat ekki einu sinni setið og fylgst með vélunum án þess að svitna...Finnur karlinn var alltaf að koma og reyna að laga þetta, og við þurftum alltaf að vera að lyfta honum með lyftaranum eitthvert lengst upp, eða allavega þurfti Baddý alltaf að lyfta honum:haha:

Jamm og já jæja það er best að fara aðeins út í dyr áður en næsti tími byrjar og bæta á vatnsflöskuna.

TaTa


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 09:30:49 / Ólöf

Geisp geisp.......

Geisp geisp....!!

Vá hvað maður er þreyttur, ég get ekki beðið eftir því að skólinn minn og skólinn hans Knúts verði búinn, þá verður sko haldið uppá það með svefni;) lengi lengi.  En þetta styttist alveg óðfluga ( óð fluga hvar??) tíhí gamall brandari sem ég og Grjóni notuðum alltaf í Kísiliðjunni :haha:  En já það er ekki nema bara vika og einn dagur þangað til fyrsta prófið byrjar þannig að þetta er nú að taka enda :haha:

Drengirnir koma um helgina og það er alveg frábært, mikið sem verður brallað þá :haha: svona síðasta skemmtunin fyrir prófin hjá okkur skötuhjúum.

Farþeganum finnst nú ekki leiðinlegt að halda mömmu sinni vakandi á nóttunum, en það er bara gaman;)  Gengur allt svakalega vel og spenningurinn orðinn mikill hjá okkur um komutímann á þeim litla.

Gleðitíðindi í gær hjá honum Knút því þá kom í ljós að hann þarf ekki að fara í nema eitt próf, þarf reyndar að gera eitthvað lokaverkefni en hann getur bara gert það hérna heima og þarf ekkert að fara til þess;)  Gaman að því.

Jæja ég er að fara í próf eftir eina klukkustund þannig að það er best að fara að læra aðeins meira 8)

TaTa


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 10:04:21 / Ólöf

Góður dagur.

Góddaginn!!

Erum stödd hérna hjá Baddý sist og krússidúllunum, svaka stuð Aníta kom og skreið uppí til okkar hjónakorna í nótt, ekkert smá gaman, hún er að venja okkur við;)  Það var bara ljúft.

En já það er komin þriðji dagur sumars og það snjóar ekkert smá mikið:( mig langar í sól og sumar ekki þennan snjó.

Jamm Knútur farinn á námskeið og við skvísur ætlum að fara að koma okkur í bæinn og hafa það gott í dag og skoða í búðir, verð reyndar að fara í tónabúðina líka;)  senditíkin ég;)

Jamm og já jæja það er best að fara að finna einhverja skó handa mér af Baddý því ég kom í gær í ecco skónum mínum hélt að það væri komið sumar, en svo er ekki þannig að ég verð að fá lánaða skó hjá henni.

Have a nice day.

TaTa. 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 12:15:14 / Ólöf

Ohhh man!

Ohh man!

Jæja þessi bannsetti skóli byrjaður aftur en sem betur fer þá er ekki nema 13.kennsludagar eftir og því næst verða prófin:$ vá hvað mig kvíður fyrir þeim.

En góðu fréttirnar eru þær að síðasta prófið mitt er 10 maí að ég held;) og ég get ekki beðið eftir að þu eru búinn. 

Ég verð nefnilega ekkert skemmtileg þegar prófin eru þyrfti helst að loka mig inni og vera ein allann tímann því ég stressa mig svo upp og verð svo upptjúnuð að það er ekki hægt að vera nálægt mér:S en þegar Knútur rifjar upp próftímann fyrir jól þá fer hann bara að hlægja og ég held að það sé kvíðahlátur fyrir næstu törn;) nei nei ég er ekkert svo rosalega slæm:$  

Baddý og co komin frá Danaveldi og það er ekkert smá ánægjulegt og gaman að hitta þau í gær..

Jæja það er best að fara að halda áfram að skólast.

See ya TaTa


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 18:12:26 / Ólöf

Geisp geisp...............

Góddaginn!!!

Jæja 2.daga í röð það er nú magnað og hægt að gefa mér klapp á kinn fyrir það;)

Ohh Baddý mig langar svo til ykkar:) fóruð þið að sumarbústaðnum þar sem við vorum í fyrra?? eða fóruð þið bara að bænum?

En já það er gott að vera í Danmörku og það verður farið þangað aftur eftir einhver ár, kannski 2 ef ekki verður gasalega buzy að gera;)

Vá hvað páskafrí er leiðinlegt svona þegar maður er einn heima, vá hvað mig hlakkar til á morgun og hina dagana því þá er Knútur líka kominn í páskafrí :haha:

Jæja hef eins og alltaf ekkert að segja, gerist ekkert hjá mér, það er rokrassgat úti þannig að maður er bara búin að vera að hanga inni og þvo þvott í dag, er að verða komin annan hring í fataskápunum hérna og þeir eru nú nokkrir;)

Jæja það er best að fara að gera sig klára fyrir gluggann:D Knútur fer að koma heim bráðum;)

TaTa

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 12:32:53 / Ólöf

PÁSKAFRÍ;)

PÁSKAFRÍ!;)

Ahh það er alveg yndislegt að vera komin í páskafrí.

Væri alveg til í að vera á Kanarí með mömmu og pabba og ég væri líka til í að vera í Danmörku með Baddý og co. Vá hvað ég öfunda þau mikið.  En jæja það kemur að því að ég og Knútur förum eitthvað;) þó það sé ekki nema bara sumarbústaður á þessu fagra landi sem kallast Ísland.  En já ég er sem sagt komin í páskafrí og hef ekkert að gera í augnablikinu... Bíð eftir því að Knútur komi heim úr vinnunni (spennandi líf hjá mér) ég er eins og hundur sem bíður við gluggan nokkrar mínútur í sex að fylgjast með umferð, er haukur gamli(bílinn) að koma eða ekki;) hehe en ég á að vera að læra en ég nenni því bara ekkert.  Stefnan tekin á smá veiði í kvöld, fiskveiði sko;)  ef þetta veðrið verður betra, það er nefnilega erfitt að kasta stöng í svona roki(getur verið hættulegt);)  Jæja ég ætlaði að fara að horfa á nágranna en það er eitthvað að stöð 2 núna þannig að ég verð bara að væla í koddann og reyna að finna eitthvað annað að gera.  Kannski ég skelli mér á Húsavík og kaupi mér ís :haha:

Jæja hafið það gott until next.....

TaTA


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 13:15:39 / Ólöf

Ónefnd færsla

Halló halló!!

Jæja ég ákvað að senda eina færslu svona til gamans.

Hummmmm vá ég held að um leið og ég ætla mér að skrifa eitthvað þá verð ég kjaftstopp DON´T KNOW WHY!!!!! svona af því ég hef aldrei átt í neinum vandræðum með að tala;)  hehe allavega ekki þegar ég er að fara að sofa, þá þarf ég að tala svakalega mikið, greyið Knútur;)
En jahh það styttist í páskana og ég get hreinlega ekki beðið. 
Ummm þegar ég kom heim úr skólanum í gær þá kom svona yndisleg tilfinning um að það væri komið vor, en svo þegar ég vaknaðu í morgun datt sú stemmning niður... Mig hlakkar svo til að hlusta á fuglana á morgnana;) vá ég er farin að hljóma eins og gömul kona... hehe sveitakerling.....
Jæja það er best að fara að hætta þessu áður en ég fer að gefa ykkur uppskrift af kæfu;) hehe við skötuhjú erum nú góð að gera hana;)
hehe hafið það gott þangað til næst veit ekki hvenær en tata.

» 4 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 11:12:25 / Ólöf

Nohhhhhhhhhhhh!!!!!!!!!!

Nohh þetta er enn við lýði gaman af því;)

Óheyjjjjjjjjjjjjjjjjjj!!!!!!!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 06:51:19 / Ólöf

Hætt

Hætt í bloggstússi

Taúrilú!


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 11:18:25 / Ólöf

Aha svona er það...

Jebb ég er komin með nýja síðu........

Sjáumst þar................

Túrilú


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6